Check SCREEN READER MODE to make this survey compatible with screen readers.
Samskiptasáttmáli - Samráð
Vinna við samskiptasáttmála skólasamfélagsins í Mosfellsbæ hófst í tengslum við átaksverkefnið Börnin okkar árið 2025. Þar voru sett fram fjölmörg verkefni sem höfðu það markmið að auka farsæld barna og ungmenna í sveitarfélaginu en eitt þeirra verkefna var að gera samskiptasáttmála fyrir skóla- og frístundasamfélagið. Samskiptasáttmálinn var unninn af stýrihópi þar sem sátu fulltrúar allra skóla sveitarfélagsins auk fulltrúa frá félagsmiðstöð, íþróttafélagi og foreldrum.
Við gerð sáttmálans var leitað til foreldra, starfsfólks og nemenda í grunnskólum og ritun hans fór að mestu fram á tímabilinu apríl til desember 2025. Á síðustu mánuðum hefur verið unnið að undirbúningi innleiðingar sáttmálans sem mun hefjast haustið 2026. Einnig er unnið að ýmsu efni í viðauka við sáttmálann en þar verður að finna ýmislegt stuðnings- og fræðsluefni.
Nú er sáttmálinn birtur til kynningar og óskað umsagna frá foreldrafélögum, foreldraráðum leikskóla, skólaráðum grunnskóla, nemendafélögum, ungmennaráði o.fl. auk þess sem hver sem er getur komið á framfæri ábendingum. Frestur til að koma ábendingum á framfæri er til 29. maí nk.