Betri þjónusta - betri rekstur
Þín ábending skiptir máli

Kæru Mosfellingar,
Mosfellsbær vinnur nú að heildstæðri úttekt á fjárhag og rekstri bæjarins með ráðgjafafyrirtækinu ARCUR. Markmiðið er að fara vel með þá fjármuni sem íbúar treysta okkur fyrir, veita góða þjónustu og skapa svigrúm til hóflegra álaga.
Þið sem nýtið þjónustu bæjarins á hverjum degi sjáið oft best hvað gengur vel og hvað mætti gera betur. Þess vegna leitum við til ykkar.
Við óskum eftir ábendingum um hvernig bæta megi rekstur og þjónustu bæjarins, til dæmis:
- Þjónustu sem mætti veita á einfaldari, fljótlegri eða aðgengilegri hátt.
- Útgjöld sem virðast ekki skila tilætluðum árangri eða verkefni sem mætti sinna á hagkvæmari hátt.
- Afgreiðsla eða verkferlar sem eru þungir í vöfum eða taka of langan tíma.
- Hugmyndir að stafrænum lausnum sem gætu sparað bæði tíma og peninga.
Í þetta sinn erum við ekki að kalla eftir hugmyndum um nýjar framkvæmdir eða nýja þjónustu. Við leitum leiða til að nýta skattfé betur í þeim rekstri sem fyrir er, hvort sem er með betri þjónustu eða lægri kostnaði.
Tekið er við ábendingum til 16. nóvember sem verða eingöngu til úrvinnslu hjá ARCUR. Við biðjum ykkur að nefna ekki einstaka starfsmenn, heldur beina sjónum að þjónustunni og verklaginu.
Könnun er nafnlaus og engum persónu upplýsingum verður safnað við þátttöku þína.
Allar ábendingar verða skoðaðar, þannig að nýta megi þær í úttektinni. Niðurstöður hennar verða hluti af umbótaáætlun sem kynnt verður bæjarráði.
Með fyrirfram þökk fyrir þátttökuna,
Hilmar Gunnarsson,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar